Um Sól
Sól er veitingastaður sem staðsettur er inn í lifandi gróðurhúsi, þar sem gestir borða yfir gróskumiklu og blómlegri uppskeru.
Gestir fá því að njóta útsýnis yfir gróðurhúsið þar sem ræktað er salat, tómatar, gúrka og matjurtir fyrir eldhúsið og barinn. Ásamt því að litið er inn í fagurt lónið, svo það er dásamlegt útsýni hvert sem litið er.
Sól leggur metnað sinn í að nota ferskasta hráefnið sem völ er á, þar á meðal grænmeti úr eigin framleiðslu sem gefur gestum beina tengingu við gróðurhúsið.
Hönnun Sól er einstök þar sambland af grænum jurtum, náttúrustein og lifandi viður spila stærstan þátt og býr til náttúrlegt og afslappað andrúmsloft.
Veitingastaðurinn er á annarri hæð og þar bjóðum við upp á lyftu fyrir hjólastóla upp að 225kg. Einnig bjóðum við upp á borð inn í gróðurhúsi með fyrirvara, þar sem hvorki þarf að nota stiga né lyftu.
Börn eru hjartanlega velkomin til okkar. Þar sem veitingastaðurinn er staðsettur inni í lifandi gróðurhúsi biðjum við vinsamlegast um að börn séu í fylgd fullorðinna, undir góðu eftirliti og haldi sig við borðið sitt meðan á heimsókn stendur. Með því hjálpið þið okkur að vernda plönturnar, rýmið og upplifun allra gesta.
Því miður þá má ekki koma með blóm til okkar þar sem þau geta borið óæskileg efni í ræktunina okkar.
Við hlökkum til að taka á móti þér!