Frá gróðurhúsinu á borðið þitt

Tíu rétta smakkupplifun með drykkjapörun og leiðsögn um Sól gróðurhús.

Kvöldið hefst með leiðsögn um gróðurhúsið þar sem gestir kynnast ræktuninni og njóta smakk af handverksbjór sem bruggaður er á staðnum.

Að því loknu tekur við tíu rétta smakkseðill ásamt drykkjapörun sem gestir velja annað hvort áfenga eða óáfenga.

Takmarkaður fjöldi sæta í boði og fyrirfram bókun nauðsynleg. Einungis í boði fyrir allt borðið og lágmarks fjöldi er tveir manns.

Verð: 44.500 kr. á mann

Innifalið í verði:

— Leiðsögn um gróðurhús Sólar

— Smakk á handverksbjór frá brugghúsi Sólar

— Tíu rétta smakkseðill

— Drykkjapörun (áfeng eða óáfeng)

Frá gróðurhúsi til borðs er upplifun þar sem matseðill og drykkjapörun hafa verið þróuð sem ein heild. Því getum við því miður ekki boðið upp á vegan-, glútenlausan eða laktósafrían matseðil. Ef um önnur fæðuofnæmi eða óþol er að ræða biðjum við ykkur vinsamlegast að hafa samband við okkur með að minnsta kosti þriggja daga fyrirvara svo við getum metið hvort hægt sé að koma til móts við þær óskir.